Keppa, keppa, keppa!!!

Í dag hefst keppni í lokaumferð íslandsmóts HSÍ í 6. flokki karla í handbolta. Hún fer fram hér í Eyjum og eru um 500 strákar að fara að keppa um helgina! 

Munu leikirnir standa yfir frá kl. hálf fimm á föstudegi til kl. tvö á sunnudaginn.

ÍBV teflir fram 4 liðum, A-liði, B-liði, C1-liði og C2-liði.

ÍBV liðin fjögur spila sem hér segir:

 

Föstudagur

kl. 17    B- liðið - HK              9 - 4

kl. 18    B-liðið - Árm/Þróttur  7 - 5

kl. 19    B-liðið - FH                6 - 2

kl. 20    A-liðið - HK               10 - 7

kl. 21    A-liðið - Fylkir           10 - 9

Laugardagur

kl. 8,30  B-liðið - Selfoss     8 - 1

kl. 10     A-liðið - Fjölnir       9 - 10

kl. 12     A-liðið - ÍR             11 - 7

kl. 13     C1-liðið - FH           4 - 5

kl. 14     C2-liðið - Haukar       5 - 4

kl. 15     C1-liðið - Fram          3 - 3

kl. 15,30 C2-liðið - KR           7 - 4

kl. 16,30 C1-liðið - Haukar 2 10 - 3

kl. 16,30 C2-liðið - HK 2        3 - 3

kl. 17,30 C2-liðið - Selfoss    3 - 8

kl. 18     C1-liðið - HK kárs.    14 - 7

Seinni part laugardags og sunnudagurinn fara svo í undanúrslit og úrslit og við náttúrulega vonum að allt gangi að óskum hjá okkar mönnum. 

Öll liðin okkar komust í milliriðla og óskum við okkur öllum til hamingju með árangurinn.

Milliriðlar

Laugardagur

Kl. 18,30   A-liðið - Stjarnan (5 - 4) 5 - 9

kl. 20        B-liðið - Fjölnir

Kl. 21        B-liðið - KR

Sunnudagur

kl. 8         A-liðið - Fram

kl. 8,30    B-liðið í milliriðli

kl. 9        A-liðið - KR

kl. 10       A-liðið - FH

     

 

 

 

 

 

 

 

 


Páskafrí í handboltanum!

Jæja, nú erum við komnir í páskafrí og næsta æfing ekki fyrr en miðvikudaginn eftir páska, klukkan 17.

Ekki gleyma að hreyfa sig í fríinu... og ekki hanga í tölvunni alla daga!!!

Sjáumst þá glaðir, úthvíldir og hressir á miðvikudaginn... ehaggi???!!!!???

Ekki borða yfir ykkur af páskaeggjum!!!

Gleðilega páska!!!


B-liðið byrjaðir að spila

B-liðið er byrjað að spila á fullu. Uppfærum úrslit um leið og við heyrum eitthvað!

 


Deildarmót á Selfossi 23. - 25. febrúar

Jæja, þá er komið að síðustu ferðinni upp á land hjá drengjunum í 6. flokki. Við förum með 3 lið eins og venjulega. A, B og C lið.

Vinir okkar á Selfossi röðuðu þessu móti eins illa upp og hugsast gæti fyrir ÍBV þrátt fyrir ítrekaðar óskir um hentugt leikjaprógramm. Lítið er við því að gera en þetta kostar auðvitað meiri dauðann tíma og meira nesti fyrir strákanna.

Ferðatilhögun:

  • A og C lið fara með Herjólfi á laugardagsmorgun og heim með flugi frá Bakka kl. 17:00 á sunnudag. (Reyni að fá leikjum breytt þannig að við getum flogið heim fyrr.)
  • B lið fer hins vegar með flugi klukkan 15:00 á föstudag á Bakka og með Herjólfi heim kl. 12:00 á laugardag.

ÍBV sér um að koma okkur á milli Þorlákshafnar og Selfoss sem og Bakka og Selfoss.

Næring:

  • A og C lið fá heitan mat (Pizzu) á laugardagskvöldinu og morgunmat á sunnudag.
  • B lið fær heitan mat (Pizzu) á föstudagskvöldinu og morgunmat á laugardag.

Fararstjórar fara í bónus og kaupa brauð og ávexti til að eiga aukalega. Mikilvægt að strákarnir komi samt sem áður með nóg af nesti.  Athugið að við verðum með fína eldhúsaðstöðu með örbylgjuofni og öllu tilheyrandi.

Taka með: ÍBV búning, hvítar stuttbuxur og hvíta sokka, handklæði og sundföt, tannbursta, einhverja afþreyingu (t.d. spil, júmbóblöð, eitthvað til að hlusta á) og HOLLT NESTI!!!

Kostnaður: 2.500,- sem á að skila til fararstjóra í merktu umslagi við brottför.

Strákarnir fá svo að vita endanlega í hvaða liði þeir eru á æfingu í dag, fimmtudag. Tilkynna þarf strax ef strákurinn kemst ekki með.

Fararstjórar verða:

  • Siggi s: 693-2485
  • Sigrún s: 698-2857
  • Villi s: 690-4746

Kveðja Jóhann Ingi Guðmundsson s: 865-9278 og 481-2310

    • Ef það er eitthvað þá hringiði í ofangreind númer


Þekki ekki jakkann!

Guðmundur Tómas Geirsson kom heim með svartan hummel jakka (úr settunum sem tvennar buxur fylgdu). Endilega hafið samband til að nálgast hann!!!


Heim með fyrri ferð Herólfs

Strákarnir okkar hafa nýtt tímann í borginn vel og spilað þétt og þar af leiðandi ná þeir fyrri ferðinni heim í dag.  Þegar síðast var haft sambandi við liðið var ljóst að A liðið hafði náð 8. sæti en ekki var komið á hreint með hin liðin.  Við reynum að birta öll úrslit hér á síðunni síðar í dag.


A liðið hefur keppni í milliriðli!

ÍBV A lið hóf keppni í dag í milliriðli á því að gera jafntefli 9 - 9 í kvöld!

Við bíðum öll eftir frekari fréttum þegar líður á mótið hvernig leikirnir munu fara!


Leikirnir í dag!

fifan_logoHér eru öll úrslit úr leikjunum sem strákarnir hafa keppt í dag.

A lið

  • ÍBV - Afturelding  10 - 6
  • ÍBV - ÍR                14 - 7       Eftir þennan leik var ljóst að A liðið var komið upp í milliriðil og því skipti næsti leikur litlu máli.
  • ÍBV - Selfoss        16 - 20    Eftir leikinn voru þeir stoltastir yfir því að markamet var sett í leiknum. 

          Milliriðill A liða hefst í kvöld kl. 19,30

B lið

  • ÍBV - Grótta    6 - 8
  • ÍBV - KA          9 - 12 
  • ÍBV- Selfoss    10 - 3
  • ÍBV - Fjölnir    

C lið

  • ÍBV - Grótta     9 - 2
  • ÍBV - KA           8 - 8      Mjög umdeilt jafntefli að sögn fararstjóra! Áttum sigurinn vísan með mark á síðustu og markið dæmt af... en lífið heldur áfram!
  • ÍBV - HK           5 - 8      Svekkelsið úr fyrri leik að draga úr þeim máttinn!
  • ÍBV - Selfoss    2 - 8

Úrslit í leikjum það sem af er!

9. júlí 047A liðið vann Aftureldingu 10 - 6 um hádegi í dag, þrátt fyrir að 3 af leikmönnum liðsins hafi orðið eftir heima vegna veikinda.

Í þessum töluðu orðum eru A liðs strákar að keppa við ÍR og eru yfir 11 - 5 þegar örfáar mínútur eru eftir!

B og C liðin hefja keppni seinna í dag!

Leikur A liðs gegn ÍR endaði 14 - 7 þannig að drengirnir eru að standa sig verulega vel.


Strákarnir farnir af stað - 3 úr A-liðinu á Sjúkralista !

Það voru mishressir peyjar sem mættu í herjólf í morgunn.  Það kom í ljós að 3 úr A liðinu komust ekki með í ferðina vegna veikinda. Jonni,Franz og Hjörtur liggja í einhverri pest og verða fjarri góðu gamni að þessu sinni. Við vonum að þeir hressist fljótllega. Þetta þýðir auðvitað bara það að hinir verða að leggja sig enn meira fram. Við reynum að birta einhverjar fréttir hér um leið og við getum.

Næsta síða »

Um bloggið

6. flokkur ÍBV í handbolta

Höfundur

6. flokkur ÍBV í handbolta
6. flokkur ÍBV í handbolta
6. flokkur karla ÍBV í handbolta veturinn 2006 - 2007

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...p4275206
  • ...p4275210
  • ...p4275212
  • ...p4275208
  • ...p4275207

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband